|
|
|
Áframhaldandi uppbygging á Stúdentagörðum |
 |
Þann 30. desember s.l. voru opnuð tilboð í nýja stúdentagarða Félagsstofnunar stúdenta við Sæmundargötu á Vísindagarðareit. Um er að ræða fjögur hús með tæplega 300 íbúðum fyrir pör og einstaklinga, alls um 12.000 m2, sem rísa munu á reitnum milli Oddagötu, Sturlugötu og Eggertsgötu.
Að undangengnu forvali voru fjórir aðilar valdir til að taka þátt í alútboði en Hornsteinar arkitektar og Sveinbjörn Sigurðsson ehf áttu vinningstillöguna.
Ein meginkrafan sem sett var í hönnunarsamkeppninni af hálfu Félagsstofnunar stúdenta og borgaryfirvalda var sú að húsin fjögur væru ólík að yfirbragði til að forðast einsleitni, enda um hjarta háskólasvæðisins að ræða og ljóst er að byggingarnar munu setja sterkan svip á háskólalífið.
|
 |
|
|
Umsóknir nýnema 2012 |
 |
Þeir sem eru að hefja nám í janúar 2012 geta sótt um nú, þ.e. 1. október eða eftir þann dag.
Ef umsækjandi er ekki í Háskóla Íslands veturinn 2011-12, þá er ekki heimilt að sækja um fyrr á miðnætti þann 1. júní. Berist slík umsókn fyrir lok 31. maí, þá verður umsókninni hafnað og umsækjandi verður að sækja um að nýju.
Nýnemar haustið 2012 - munið að velja valmöguleikann "nýnemi 2012-13". |
 |
|
|
Vantar þig námsmannaíbúð í Garðabæ ? |
 |
|
Stúdentagarðar sjá um útleigu á 14 námsmannaíbúðum fyrir Garðabæ sem eru staðsettar að Arnarási 9-11 í Garðabæ.
Um er að ræða 4 stúdíóíbúðir 45,5 m2, leiga á mán. 76.708 kr og hiti 2.790 kr, 6 tveggja herbergja íbúðir 54,2 m2,leiga á mán. 86.842 kr og hiti 3.161 kr, og 4 þriggja herbergja íbúðir 71,5 m2,leiga á mán. 103.914 kr og hiti 3.935 kr.
Leiguverð er hér birt miðað við vísitölu neysluverðs þann 1. október 2011, 383,3 stig.
Innheimt er sérstaklega fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli og internettenging fylgir ekki með íbúðunum.
|
 |
|
 |
|
|
Námsframvinda |
 |
|
Samkvæmt úthlutunarreglum Stúdentagarða þurfa íbúar að skila a.m.k. 40 ECTS á skólaárinu (haust- og vormisseri samanlagt) þar af a.m.k. 18 ECTS á haustmisseri til að hafa rétt á áframhaldandi leigusamningi. Eftir haust og vorpróf skoðar skrifstofa Stúdentagarða einingastöðu íbúa og athugar hvort viðkomandi uppfylli tilskilin einingarfjölda. Íbúum er bent á að lesa úthlutunarreglur á heimasíðu Stúdentagarða undir umsókn, reglur. |
|
|
|
7.7.2011 11:19 |
|
Ekki hylja glugga með svörtu plasti eða slíku |
 |
Af gefnu tilefni viljum við benda íbúum á að ekki má nota svarta plastpoka eða annað þess háttar til að byrgja glugga á íbúðum ykkar.
Í sólskini myndast mikill hitamismunur í glerinu og algengt er að rúður springi í gluggum sem eru huldir svörtu plasti.
Íbúar sem að þetta gerist hjá, verða gerðir ábyrgir fyrir þeim kostnaði sem hlýst af því að skipta þarf um gler.
|
|
|
|
|
|